Fyrirlestrar

Fyrirlestrar

Töfrakistan býður upp á fyrirlestra fyrir fyrirtæki og hópa til að efla vellíðan í leik og starfi. Markmiðið er að skapa jákvæða upplifun og gefa þátttakendum verkfæri í hendur til að auka eigin vellíðan. Töfrakistan leggur áherslu á líflega fyrirlestra og þátttöku þeirra sem hann sitja. Fyrirlestrarnir innihalda fræðslu sem byggir m.a. á vísindalegum grunni og reynslu fyrirlesara ásamt hagnýtum og skemmtilegum æfingum sem þátttakendur spreyta sig á. Töfrakistan byggir hugmyndafræði sína  á jákvæðri sálfræði og jóga. Töfrakistan getur sniðið fyrirlesturinn að þínum hópi. Töfrakistan sérhæfir sig í fyrirlestrum í vellíðan, þakklæti, jákvæðu hugarfari og núvitund. 

Skapaðu jákvæða orku

Þessi fyrirlestur er 60 mínútur og skiptist í fræðslu og svokallaðar orkuæfingar sem miða að því að skapa jafnvægi í líf okkar. Farið verður í það hvernig þú getur skapað jafnvægi í leik og starfi og hvernig hægt er að skapa jákvæða orku á vinnustaðnum. 

Lykilhugtök: Orka, jafnvægi, jákvæð sálfræði, þakklæti, núvitund og vellíðan.

Þakklæti til aukinnar farsældar

Þessi fyrirlestur er 60mínútur og skiptist í fræðslu og svokallaðar þakklætisæfingar. Þakklæti er ein jákvæðasta tilfinning sem til er og í þessum fyrirlestri lærir þú nokkrar einfaldar þakklætisvenjur sem aðstoða þig að beina sjónum að því góða í lífi þínu. Fyrirlesturinn er fyrir þá sem vilja öflug verkfæri í hendurnar til að skapa líf fullt af hamingju, vellíðan og gleði. 

Þátttakendur fá 20% afslátt af Þakklætisdagbókinni.

Fyrirlestrarnir fara fram í gegnum netið.

Hafðu samband tofrakistanmin@gmail.com ef þú hefur áhuga á að panta fyrirlestur fyrir þinn hóp.

Hafðu samband og Töfrakistan getur hannað námskeið eða fyrirlestur sem hentar þínum hópi

Þessi síða notar vafrakökur

Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar, til að geta notað lausnir frá samfélagsmiðlum og til að bæta efni og birta viðeigandi markaðsefni.