Námskeið
Námskeið fyrir hópa
Töfrakistan hefur boðið upp á námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir í Kaupmannahöfn en sú þjónusta er ekki í boði lengur. Hægt er að panta netfyrirlestur í staðin fyrir fyrirtækið þitt.
Námskeið fyrir einstaklinga
Töfrakistan býður upp á tvö námskeið fyrir einstaklinga þ.e einstaklingar kaupa námskeiðið en á námskeiðinu sitja fleiri.
Vellíðan kennara netnámskeið
Töfrakistan býður upp á netnámskeið fyrir kennara þar sem kafað er ofan í hugtakið vellíðan og kennarar fá verkfæri byggð á jákvæðri sálfræði til að vinna með hugtakið í leik og starfi.
Námskeiðið verður í boði 2025 en verður með öðru sniði.
Draumaárið mitt
Töfrakistan býður í annað sinn upp á netnámskeið þar sem þú hannar það líf sem þú vilt skapa á nýju ári.
Námskeiðið verður í boði í janúaúr 2025.
Hafðu samband við tofrakistanmin@gmail.com ef þú hefur áhuga á námskeiði fyrir þinn hóp. Töfrakistan getur hannað námskeið að þínum þörfum er snýr að vellíðan starfsmanna.