Námskeið

Námskeið

Töfrakistan býður upp á námskeið og vinnustofur fyrir fyrirtæki og hópa til að efla vellíðan í leik og starfi. Markmiðið er að skapa jákvæða upplifun og gefa þátttakendum verkfæri í hendur til að auka eigin vellíðan. Unnið er með huga, líkama og sál á heildrænan hátt í gegnum hugleiðslu, öndun, jóga, dans, djúpslökun og hugarfarsleg verkefni.  Töfrakistan byggir hugmyndafræði sína  á jákvæðri sálfræði og jóga. Töfrakistan getur sniðið námskeiðið að þínum hópi. Töfrakistan sérhæfir sig í námskeiðum í vellíðan, þakklæti, jákvæðu hugarfari og núvitund. 

Þakklætisnámskeið

Þessi vinnustofa er 3klst ferðalag inn á við sem hefur það að markmiði að aðstoða þig að innleiða þakklætisiðkun í þitt líf. Þakklæti er ein jákvæðasta tilfinning sem til er og á vinnustofunni lærir þú nokkrar einfaldar þakklætisvenjur sem aðstoða þig að skapa og viðhalda jákvæðri orku í kringum þig og ekki síst kalla til þín meira til að geta þakkað fyrir. Við lærum í gegnum fræðslu, hugleiðslu, dagbókarskrif, jóga, dans, pilates, yoga nidra og orkuvinnu allt blandað saman í töfrandi flæði. Með hreyfingu huga og líkama gefst þér tækifæri til að sleppa tökum á því sem þjónar þér ekki lengur og skapa rými fyrir það sem þú vilt meira af inn í líf þitt. Þú mótar ásetning á vinnustofunni með því að virkilega hlusta á þitt innra sjálf og í lokin förum við í gegnum töfrandi leiðangur Yoga nidra sem aðstoðar þig að festa ásetning þinn í sessi í öllum frumum líkamans. Þessi vinnustofa er fyrir þá sem vilja öflug verkfæri í hendurnar til að skapa líf fullt af hamingju, vellíðan og gleði.

Þátttakendur fá 20% afslátt af Þakklætisdagbókinni.

Þessi vinnustofa er eingöngu í boði í eigin persónu.

Hafðu samband við tofrakistanmin@gmail.com ef þú hefur áhuga á halda vinnustofu fyrir þinn hóp.

Áherslur og leiðir:

Ég ætla á þessu námskeiði að leiða þig í gegnum leiðangur sem gefur þér verkfæri og hugmyndir til að auka vellíðan þína í leik og starfi.

Áherslur námskeiðsins eru m.a:

  • að beina athygli þinni að því sem gengur vel í starfi.
  • að læra leiðir til að takast á við streitu.
  • að læra einfaldar venjur sem auka vellíðan.
  • að skoða gildi þín og tilgang í starfi.
  • að auka meðvitaða nærveru í starfi (núvitund).

 

Fyrirkomulag:

Námskeiðið er haldið á mánudögum á zoom kl.14:30 – 16:00.

Hver tími inniheldur blöndu af fræðslu, umræðum og iðkun. Iðkunin samanstendur af  öndunaræfingu, dagbókarskrifum, jóga og hugleiðslu sem þátttakendur hafa aðgang að á meðan á námskeiði stendur.

Stofnaður verður facebookhópur þar sem þátttakendur geta ef þeir vilja tekið þátt í umræðum og spurt spurninga. Þar mun einnig birtast ítarefni og upptaka af fyrirlestrum og æfingar.

Viku fyrir fyrsta námskeiðsdag fá þátttakendur aðgang að þessum hópi ásamt zoom slóð á fyrirlestrana en það er sama slóð alla dagana. 

 

Verð og skráning:

Þátttökugjald er 4.000 krónur sem Skóla og frístundasvið Reykjavíkurborgar innheimtir. Allt sem snýr að greiðslu fer í gegnum þá.

Hægt er að sækja um styrk í C-sjóð (einstaklingsbundinn styrktarsjóður) á vegum Kennarasambands Íslands.

Hægt er að skrá sig beint með því að smella hér eða skrá sig á síðu Töfrakistunnar hér fyrir ofan.

 

Hafðu samband og Töfrakistan getur hannað námskeið eða fyrirlestur sem hentar þínum hópi

Þessi síða notar vafrakökur

Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar, til að geta notað lausnir frá samfélagsmiðlum og til að bæta efni og birta viðeigandi markaðsefni.